Monday, May 4, 2009

Sumarboði í stofunni.

Um daginn kom þessi drottingar ómynd í heimsókn til okkar á Lagarásinn. Eftir nokkurra tíma heimsókn var henni að lokum hent út, enda óþolandi svona gestir sem hvorki boða komu sína með góðum fyrirvara né stoppa skynsamlega lengi.



Við fengum svo þessa dásemdar kónguló í morgungjöf í morgun. (Hún var búin að hreiðra um sig á stólbaki í stofunni í myndar vef). Ég beytti miklum þrýstingi á Dögun að við myndum halda henni og gefa henni nafn. Það fékk engan hljómgrunn. Og þegar ég gaf henni fiskiflugu að borða varð Dögun enn minna spennt.
Hér smjattar hún á flugunni


Henni var því líka kastað á dyr, nafnlausri með öllu. En kannski bara eins gott þar sem kóngulóar-búskapur móður minnar um árið endaði nú ekki á besta veg! Ég hugsa samt að menn hætti að koma í heimsóknir til okkar með þessu áframhaldi.

En eitt er á hreinu og það er að sumarið er á næsta leiti!

2 comments:

Anonymous said...

Ég sem var einmitt að hugsa um að kíkja í heimsókn alveg óvænt, og stoppa mjög lengi. Snarhætt við það.

E

Anonymous said...

Nú þykir mér moldin vera farin að rjúka í logninu...og flugurnar að springa úr hita!
kv. mamma