Monday, May 18, 2009

Ráðagóð húsmóðir

Í tæp 4 ár er mig búið að dreyma um að eignast ákveðna kerru. En þar sem ég fékk að gjöf dýrindis barnavagn frá foreldrunum þegar Dögun fæddist hafði ég enga afsökun til að sérpanta kerru erlendis frá.

Síðasta vor sá ég svo að Snúðar og Snældur voru orðnir umboðsaðilar fyrir draumakerruna mína.
Ég var ekki lengi að sannfæra Stínu fínu svilkonu um ágæti kerrunnar og hún splæsti í eina undir krílin sín.
Eftir að Sól fæddist hélt ég áfram að nota vagninn góða - enda um ævieign að ræða þegar Emmaljunga er annars vegar. En mig dreymdi þó áfram um kerruna fínu. Þarna á milli var Kristín vinkona að vandræðast með kerru undir sína stráka og ég benti henni að sjálfsögðu á hvar hægt væri að fá draumakerruna. Hún lét fallast og var hæst ánægð.

Nú var ég orðin frekar óþreyjufull og kerran veik ekki úr huga mér.

Við keyrum um á litlum bíl sem er er góður að mörgu leiti en ókosturinn er að Emmaljunga vagninn kemst ekki fyrir nema að hertaka framsætið og að Óðinn labbi (ekki labba ég alla vega). Þetta er auðvitað frekar þreytandi þegar þarf að skutlast á milli staða með vagninn. Þarna byrjaði að glitta í vonina..... hvernig væri að minnka vagninn niður í kerru???
En vagninn einn og sér dugði ekki alveg.... því tók ég á það ráð að selja undan aumingja Sól: vagninn, minni kerru,burðarrúm, bílstól og base til að hala inn fyrir einni skitinni draumakerru. En viti menn, það tókst að lokum.

Nú eigum við því hárauða Phil & Teds kerru undir Dögun og Sól - mér (aðalega) til mikillar gleði. Við erum samt öll hæst ánægð með þetta enn sem komið er því hún tekur lítið pláss og kemst í skottið á bílnum og var n.b. ódýrari en nýr bíll. Emmaljunga verður samt sárt saknað og til að missa hann ekki alveg úr augsýn kom ég honum fyrir í góðum höndum.




En nú er bara að vona að kerruskömmin standi undir öllum þeim væntingum sem ég hef!

7 comments:

Anonymous said...

Þær gerast ekki flottari!
Til hamingju með þetta. Systurnar taka sig glæsilega út í drossíunni.
Bestu kveðjur
Stína

Anonymous said...

Oh heppin ertu.. ég er búin að eiga mér þennan draum í u.þ.b. ár, en druslast samt enn með hálf ónýtan kerruvagn.
Drífa

Anonymous said...

Frábært, en ætli sé til þriggja hæða kerra fyrir þriggja barna ömmur?
Kveðja, amma gulrót

Anonymous said...

E.s. fyrir: Yngst, eldri, elst!
kv. abg.gr.

Anonymous said...

Heyrðu, Dögun stóra sest nú ekki í þetta í marga mánuði í viðbót! Sé kerran slík fjárfesting verður þú að búa til annað nothæft barn til að nýta hana.

Amma súkk

Steinrún Ótta said...

Iss- ég fæ bara Úlfinn lánaðan í kerruna þegar Dögun er orðin of stór.... enda á hún auðvitað að labba sem oftast.

En aukasætið þarf heldur ekkert að vera á alltaf, kerran virkar alveg fyrir einn ;o)

En kerran gæti vissulega verið átylla til að rökræða við Óðinn um 3ja barnið.... svon í framtíðinni..... Hugsa samt að hann láti ekki freistast þó hagsýnn sé.

Anonymous said...

Svo er auðvitað spurning um að verða dagmamma, byrja á einu litlu sem getur tekið við sætinu af Dögun. Svo fjölgar þú þeim og verður fyrr en varir farin að ýta á undan þér kerru með 5 stykkjum! Er þetta ekki ágætis leið til að þurfa ekki að fara sjálf "út" á vinnumarkaðinn og vera lengur heima með Sól? ;)
Kv. Stína