Það skrítna í þessu öllu saman er nefnilega að:
- Dögun fæddist tveimur dögum eftir afmælið mitt.
- Sól fæddist tveimur dögum eftir afmælið hans Óðins.
- Úlfur Stefán (bróðursonur) fæddist á afmælinu hans Braga afa ári áður.
- Sól fæddist á afmælinu hennar Unnu ömmu.
Tveim nóttum áður en Sól kom í heiminn vaknaði ég upp með martröð. Fullt af eldri konum (eins og seiðkonur eða hópur af eldri ljósmæðrum) stóðu í hálfhring yfir rúminu mínu og hvísluðu. Ég man bara að hvíslið magnaðist og varð eins og suð, ég fékk gæsahúð og mikinn hjartslátt og hrökk upp í svitakasti. Ég taldi mig aðeins hafa verið að dreyma og lokaði augunum aftur en þá birtust þær enn á ný, suðið var óbærilegt og þetta var eins og í lélegri bíó-hrollvekju. Eftir þetta þorði ég ekki að loka augunum og vakti það sem eftir lifði nóttu. Ekki veit ég hverjir þetta voru eða hvort mig var að dreyma eða ég í annarlegu ástandi vegna veikinda, en ég er samt næstum viss um að þessar konur vildu að hún amma mín elskuleg fengi Sólina í afmælisgjöf.
Núna ári seinna eiga sem sagt þessar tvær perlur afmæli, Unna amma og Sól. Frá fyrstu kynnum hafa þær verið góðar vinkonur og kemur ákaflega vel saman.
Innilega til hamingju með daginn báðar tvær!
2 comments:
Já þú hefðir svo sannarlega ekki getað fundið betri manneskja til að fá Sól í afmælisgjöf. Innilega til hamingju með þær báðar tvær :)
Til hamingju með Sólina og Unnu ömmu, flottar saman :)
Kveðjur Joðin & co
Post a Comment