Tuesday, January 27, 2009


Húsmóðirin ryksugar, þrífur, þvær þvott og straujar, eldar, gefur brjóst, skiptir um bleyjur, klæðir, greiðir hár, les barnabækur, leikur í Barbie, horfir á Stundina okkar, huggar, snýtir, skeinir, verslar inn og brosir í gegnum tárin....... eða allt að því. Hún er alla vega ekki "móðir í hjáverkum" lengur, nú er þetta bara full time job og auðvelt að gleyma sjálfri sér.

Í tilefni af því hef ég ákveðið að skella ekki á mig maskara áður en ég næ í Dögun á leikskólann, svona til að toppa daginn.

2 comments:

Anonymous said...

Velkomin í stuðið!

kv.
Ísold

Anonymous said...

Þú ert alveg að misskilja... húsmóðirin ryksugar, straujar og gefur brjóst MEÐ maskara og rauðan varalit og uppsett hárið eins og sést á vinkonu þinni á myndunum. Hún er nebbla eiginkona líka sko.

*Eygló