Friday, March 6, 2009

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag.....

Þann 6. mars 1959 eða fyrir slétt 50 árum fæddist hjónunum Guðjóni Sveinssyni og Jóhönnu Sigurðardóttur lítið stúlkubarn er nefnd var Anna Björk. Í dag fagnar hún stórafmæli sínu og til að hjálpa henni að rifja upp liðin ár ætla ég að setja inn nokkrar myndir af 50 ára ferli þessarar merku konu.Hér er Anna Björk með Guðnýju vinkonu sinni á Breiðdalsvík í gamla daga.Hér er hún orðin eldri (Stefán Númi alveg eins og hún).Hér er hún svaka gella á unglingsárunum!
Hér er Anna Björk hörkutól.
Þetta er svona tíbísk "gemsa-mynd" sem flestar ungar konur eiga af sér í dag.... þessi er hins vegar tekin á filmuvél, en uppstillingarnar breytast greinilega lítið í gegnum árin.
Ung og saklaus í kór.Íþróttaliðið - hún var einu sinni efnileg þar... hef ekki séð hana mikið á íþróttaskónum eftir það ;o)Svo ung og sææææt!
Enda farin að skella sér á böll og hitti þar einn myndar-mann og Stefán heitir hann.....

...og úr varð þessi ágæti drengur sem fæddist 24. maí 1978

Litla fjölskyldan á góðum degi.

Og önnur..
..hjónin yngjast nú bara með árunum ef eitthvað er...sei, sei já..

En auðvitað var ekki nóg að eiga einn strákbjána.... svo ofninn var hitaður aftur.

og mikið hlýtur þetta að vera besta móment í lífi Önnu Bjarkar, það þegar þessi fagra stúlka kom í heiminn 19. júní 1983 kl. 13:07 á Lasanum. Ég efast ekki um það í eina sekóntu!

og fjölhæf er hún þessi elska og kallar ekki allt ömmu sína.

Hér er svo þessi myndar fjölskylda um jól líklega 1985, fínt hár mamma!

Hér erum við s.s. komin á krumpugalla&permanent-tímabilið.

sem betur fer stóð það ekki lengi....

og hárgreiðslan breyttist líka...til hins betra er mér óhætt að segja...

smá axlapúða tímabil 1993, hliðarspor í tísku má öðru hvoru...

En þegar fullkomnun er náð hættir mönnum til að fara yfir strikið....
því fæddist örverpið þann 1. ágúst 1995.

hér er svo ein síðan 1999
Hér hætti Anna Björk að telja....

Svo:
eftir mann, 3 börn, 2 tengdarbörn og
3 barnabörn.....
Dögun 2005

Úlfur Stefán 2007

Sól 2008

.....lítur Anna Björk ekki út fyrir að vera deginum eldri en fimmtug!

Elsku mamma mín, innilega til hamingju með daginn og árin þín 50, hvert eitt og einasta. Þau gera þig að þeirri mannerskju sem þú ert, duglegri og sterkri konu sem vert er að líta upp til.... (þrátt fyrir örfá tísku-hliðarspor sem líta má fram hjá) ..... :o)

Klárlega besta mamma í heimi!

P.s. og vertu þakklát fyrir að:

1) hafa ekki verið ung á tímum stafrænna myndavéla, mikið eiga dætur mínar eftir að hafa úr mörgum ljótum myndum að velja þegar ég verð 50.
2) að ég komst ekki í myndaalbúmin hjá ömmu og afa í Breiðdal
3) fyrir að ég sleppti möööörgum myndum sem hefði sannarlega verið skemmtilegt að skoða, en þín vegna setti ég þær ekki inn ;o)




17 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með mömmu þína! Hún lítur að sjálfsögðu ekki út fyrir að vera deginum eldri en 30!
endilega skilaðu kveðju til hennar!

Anonymous said...

Hæ elskuleg og til hamingju með 50 ára afmælið.

Ég ætla að skreppa austur í til þín þegar þú verður 100 ára.
Njóttu dagsins og láttu nú stjana við þig í dag.

Bestu kveðjur austur.

Knús og kossar frá litlu systur Hönnu Báru og co

Anonymous said...

Takk fyrir þessa óvenjulegu afmæliskveðju. Þú ert nú meiri manneskjan. Takk fyrir þetta mín ljúfa. Tískuhliðarsporin eiga nú eftir að verða fleiri, bíddu bara.
Ástarkveðja,
mamma

Anonymous said...

Elsku mamma, til hamingju með daginn. Mikið væri gaman að vera með ykkur í dag. Njótið dagsins og hafið það gott.

Knús og kossar frá københavn

Anonymous said...

Æ, en skemmtilegt æviágrip!
Steinrún þú setur út á hárið, svona er að vera með úfið hár. Hvernig heldur þú að æviágripið mitt verði! Get ekkert breytt helv... hárgreiðslunni. Og til gamans; þessi miði á ball með Völundi gildir á tvítugsafmæli Árna. Ætli þau hafi kannsi kynnst á því balli? Til hamingju með daginn, Anna Björk. Sjáumst líklega á eftir, er orðin hitalaus og mun hressari eftir faein hörmungardægur. Óttast að ég geti ekki notað flugmiðann eftir 50 ár.
Kv.
Svala sjúklingur

Anonymous said...

Til viðbótar. Ég hafði ekki áttað mig á hve Númi er líkur mömmu sinni þ.e. á myndum af henni sem barni.
Svala

Steinrún Ótta said...

Njóttu vel mamma mín...... vona að ég fái samt að koma í afmælið þitt á morgun ;o)

Svala mín, þú ert nú alltaf gullfalleg með krullurnar þínar, enda öfundsverðar og flottar.... annað gildir um permanent á fólki með algjörlega slétt hár, það bera ekki allir krullur!

harpa said...

Til hamingju með daginn! ÆÐisleg kveðja steinrún!!!

Anonymous said...

En fallegt! Og þú ert bara svona lík mömmu þinni:)

Til lukku með daginn!

(ps: ánægð með dressið hennar Sólar!)

Anonymous said...

Æææðisleg kveðja Steinrún! Til hamingju með afmælið og allt ríkidæmið Anna Björk.
Hamborgarar

Anonymous said...

Hahaha frábært myndasjó!
Til hamingju með daginn elsku frænka mín. Þú varst glæsileg öll 50 árin, líka með permanett og krumpugalla!

*Eygló

Anonymous said...

jiiiiiiii fékk pínu tár í augun (maður verður svo meir með aldrinu sko) Fallegt Steinrún!

Elsku frænka til hamingju með árin, þú ert gull að innan sem utan, m.e.a.s líka með permanett....

Sé ykkur á eftir!
Ísold

Unknown said...

úps þarna átti að meyr en ekki meir! nú verður kennanrinn ekki ánægður!

Anonymous said...

Bestu þakkir öll fyrir ljúfar kveðjur. Kennarinn er ánægður enda búinn að fá mikla athygli, faðmlög og elskulegheit frá vinnufélögunum og nemendunum. Er með tárin í augunum yfir allri þessari elsku.
Ætla að verða aftur fimmtug á næsta ári, þetta er svo gaman!

Anonymous said...

Til hamingju með daginn elsku frænka, verst að vera ekki laus á morgun og geta skotist til þín!!
Verð samt að fá að segja með myndirnar, það að börnin séu lík þér. Ég man alltaf eftir því þegar ég fletti í gegnum gamalt albúm í Mánabergi að þá sá ég bara Steinrúnu, Núma, Einar, Eygló, sjálfan mig og fleiri út um allt en hvergi þau Mánabergsbörn!!
Afmæliskveðjur, JJAV :)

Anonymous said...

Skemmtileg afmæliskveðja. Til hamingju með hana mömmsu þína sem yngist nú bara með árunum eins og fleiri mömmur. Við getum sko farið að hlakka til...

HeLP said...

Alger snilldar afmæliskveðja Steinrún!!
Stórt knús til þeirrar fimmtugu annars verð ég kanski svo heppin að geta skilað því sjálf til hennar í næstu eða þarnæstu viku.

Hlakka SVOOOO til að hitta ykkur og sjá Sólina með eigin augum.

Linda