Thursday, February 26, 2009

Lobburnar

Systurnar eiga góða ömmu sem bráðum verður ógeðslega gömul, þ.e. í næstu viku. Sú prjónar nú samt ekki þó hún geti það. Þess vegna fá Dögun og Sól bara lánaða eina Dísu prjónaömmu hjá Úlfi Stefáni frænda svo þær eignist góðar lobbur eins og sannir íslendingar.

Hér er Dögun í sinni lobbu og vettlingum frá Dísu á sunnudagsrölti með foreldrunum

Hér eru Sól undirhöku-safnari og "gamla" amman sem verður bráðum 25 ára......(x2)...

7 comments:

Anonymous said...

Allt svo fallegar peysur og fallegar stelpur á öllum aldri!
kv.
Stína

Anonymous said...

Vá - heppnar systur - eru svona prjónaömmur e-s staðar til sölu??

p.s. ég fór að flissa þegar ég las "undirhöku-safnari" og ég er í tíma :S

Anonymous said...

Yndisfríður blómálfur, Lína, randaflugufangi og lobbustelpur.

Eygló frænks

Anonymous said...

Það er svo gott að eiga svona prjónandi skáömmu ásamt hinum. Það er nú gott að eiga undirhöku til hörðu áranna.
kv. mamma/amma

Anonymous said...

Æ gaman að sjá allar þessar blómálfa- og býflugumyndir. Öskudagspartýið var yndislegt. Algerar krúsímýs á öllum myndum... ekki síst amman síunga :P

Kv. Alma.

harpa said...

heyrðu, ég tek lobbuna hans úlfs með líka og svo verður tekin hópmynd um páskana :D

knús í kotið!

köbenararar

Steinrún Ótta said...

Góð hugmynd! ;o)