Wednesday, July 9, 2008

Update:

Margt búið að gerast síðan...tja.... 21. júní.
Einkadóttirin hélt fína veislu í tilefni afmælisins og daginn eftir var annar í veislu haldinn hátíðlegur þegar Jóhanna Kolbrörg frænka kom í kaffi og bauð svo í heitapottinn á Hörgsásnum. Svo komu amma gulrót, afi og Númi í kvöldmat eftir reisu til Köben.Djazzhátíðin var sótt heim og tókst afar vel til.

27. júní var leikskólaveisla með hoppuköstulum, þrautum og pulsupartíi.
28. júní fórum við Óðinn í æðislegt brúðkaup í Hallormasstaðaskógi, þar sem Edda og Loftur voru gefin saman af sýrslumanninum með pomp og prakt. Á meðan fór Dögun í sveitina til ömmu, afa, Bleggeddu og Co. og gisti þar eina nótt. Hún lifir enn á því stúlkan atarna.
5. júlí var bongóblíða á Egilsstöðum og við nutum sólarinnar í botn. Hvort sem var á mánatröð, í skóginum eða á Lagarásnum.
6. júlí kom svo Úlfurinn og Co. og heiðraði okkur með nærveru sinni. Annar eins gullmoli er vandfundinn og sjá frænkur, frændur, ömmur og og afar ekki sólina fyrir blessuðu barninu, enda afar vandað og gáfulegt eintak þar á ferð. Að ekki sé talað um bláeygt úr hófi fram!
7. júlí fórum við svo að hitta fósturdótturina á Norfirði þar sem hún eldaði þennan snilldar mat fyrir okkur. Við borðuðum svo mikið að við bíðum þess enn ekki bætur. Dögun var þó ekki sátt með að skilja Systu sína eftir þarna í óþekktum bæ og grét sáran þeta við kvöddum.
TAKK FYRIR MATINN DAGRÚN!

5 comments:

Anonymous said...

Hva - mér hefur skilist að enn væri vetur á Austurlandi og sit hér og raða niður í bakpoka ullarfötum og dúnfatnaði fyrir morgundaginn! Var að spá í að taka gönguskíðin. Er þetta bara vitleysa? Þarf ég bara engu að kvíða?

Svala

Anonymous said...

Bannað að setja inn myndir af mat! Ég verð bara svöng.

Kv.
Stína

Steinrún Ótta said...

Svala:
Hér er ekki vetur, en samt ekki langt frá því á köflum

Stína: Komdu bara í mat kona, í kvöld var t.d. glillaður hvítlauksmaríneraður humar, grilluð kartafla með kryddsmjöri ásamt salati........ ;o)

Anonymous said...

Sumarið lætur eitthvað bíða eftir sér en maturinn hjá Dagrúnu er mjög góður og sannarlega óhætt að mæla með kokkinum á Hótel Eddu á Neskaupstað.
kveðja,
mamma

Anonymous said...

Jæja þarf kona að kvarta á öllum netsíðum? Bumbumynd!

Eygló