Maður á sem sagt bara eitt gott ár eftir, að minnsta kosti eftir þessu að dæma.
En þar sem brjóstargjafaþokan er einnig í hámarki er ekki víst að ég eigi neitt eftir.
Saturday, March 21, 2009
Friday, March 6, 2009
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag.....
Þann 6. mars 1959 eða fyrir slétt 50 árum fæddist hjónunum Guðjóni Sveinssyni og Jóhönnu Sigurðardóttur lítið stúlkubarn er nefnd var Anna Björk.
Í dag fagnar hún stórafmæli sínu og til að hjálpa henni að rifja upp liðin ár ætla ég að setja inn nokkrar myndir af 50 ára ferli þessarar merku konu.
Hér er Anna Björk með Guðnýju vinkonu sinni á Breiðdalsvík í gamla daga.
Hér er hún orðin eldri (Stefán Númi alveg eins og hún).
Hér er hún svaka gella á unglingsárunum!

..hjónin yngjast nú bara með árunum ef eitthvað er...sei, sei já..

því fæddist örverpið þann 1. ágúst 1995.

Hér hætti Anna Björk að telja....
Svo:
eftir mann, 3 börn, 2 tengdarbörn og
3 barnabörn.....

.....lítur Anna Björk ekki út fyrir að vera deginum eldri en fimmtug!
Elsku mamma mín, innilega til hamingju með daginn og árin þín 50, hvert eitt og einasta. Þau gera þig að þeirri mannerskju sem þú ert, duglegri og sterkri konu sem vert er að líta upp til.... (þrátt fyrir örfá tísku-hliðarspor sem líta má fram hjá) ..... :o)
Klárlega besta mamma í heimi!
P.s. og vertu þakklát fyrir að:
1) hafa ekki verið ung á tímum stafrænna myndavéla, mikið eiga dætur mínar eftir að hafa úr mörgum ljótum myndum að velja þegar ég verð 50.
2) að ég komst ekki í myndaalbúmin hjá ömmu og afa í Breiðdal
3) fyrir að ég sleppti möööörgum myndum sem hefði sannarlega verið skemmtilegt að skoða, en þín vegna setti ég þær ekki inn ;o)

Subscribe to:
Posts (Atom)